Við höfum fengið skeyti frá lesanda sem bendir ótvírætt á villuna. Þá finnst okkur óþarft að draga lesendur lengur á svarinu. "Sönnun" Stefáns Inga, sem er starfsmaður Vísindavefsins, var svona:
Látum a og b vera tvær tölur og segjum að þær séu jafnar, það er a = b.
Þá fæst a = b sem er jafngilt
...
Skjaldarmerkið er hvorki framan á né aftan á íslensku einnar krónu myntinni. Á framhliðinni er mynd af bergrisa úr landvættamerkinu, en á bakhlið er þorskur.
Á 5, 10, 50 og 100 króna peningum eru allar landvættirnar fjórar á framhliðinni en ekki skjaldarmerkið. Hins vegar var algengt að hafa skjaldarmerkið á ...
Samkvæmt skilgreiningu Netlögbókarinnar er svarið við spurningunni þetta:Réttarreglur eru þær reglur sem taldar eru tilheyra ákveðnu réttarkerfi, t.d. réttarkerfi ríkis. Það fer eftir réttarheimildum hvers réttarkerfis hvaða reglur eru taldar tilheyra því kerfi. (Stefán Már Stefánsson, Úlfljótur 1971, bls. 299). S...
Með hljóðdvalarbreytingu er átt við breytingu á framburði sérhljóða sem lengdin ein hafði aðgreint í öndverðu. Talið er að þessi breyting hafi gengið yfir á 16. öld. Áður en breytingin hófst gátu áhersluatkvæði bæði verið stutt og löng. Ef áhersluatkvæði voru stutt höfðu þau stutt sérhljóð með stuttu samhljóði á e...
Eins og gildir um vörur sem ganga kaupum og sölum er verð á sauðfé breytilegt eftir markaðsaðstæðum. Eins er verðið örugglega breytilegt eftir „gæðum“ þess fjár sem um ræðir.
Hvað ætli þessar kindur kosti?
Það má hins vegar fá ágæta hugmynd um hvers virði kindur eru í peningum með því að kanna hvernig ríkis...
Franski heimspekingurinn og baráttukonan Simone Weil (1909-1943) var dóttir læknisins Bernards Weils og konu hans Salomea sem vann alla tíð þétt við hlið manns síns og var vel að sér í læknisfræði. Á æskuheimilinu var mikið lagt upp úr menntun og sá Salomea um nám barna sinna tveggja, Simone og André sem bæði voru...
Kirkjufeður eru þeir einstaklingar nefndir, um hundrað að tölu, sem voru leiðtogar og fræðarar kristninnar fyrstu tæpar átta aldirnar, það er að segja á aðalmótunarskeiði hennar. Oftast eru postularnir þó undanskildir sem og aðrir höfundar Nýja testamentisins.
Sumir þessara svokölluðu kirkjufeðra rituðu til að...
Skammstöfunin SMS stendur fyrir 'Short Message Services' sem gæti útlagst smáskilaboðaþjónusta á íslensku.
Með smáskilaboðum má senda 160 stafi eða tákn í GSM síma, annaðhvort frá öðrum síma eða frá tölvu. Það er til dæmis hægt á síðum Vodafone, Símans og Nova.
Ef slökkt er á síma sem sent er til eða hann u...
Undir venjulegum kringumstæðum verður lamb kynþroska við sex mánaða aldur. Ef það kemur í heiminn í maí þegar sauðburður er í hámarki þá ætti það að verða kynþroska í nóvember. Þá getur það varla kallast lamb lengur heldur ær ef um kvendýr er að ræða en hrútur ef það er karldýr. Reyndar kallast karllömb líka hrút...
Ekki er hægt að benda á neina eina sérstaka tölu og segja að hún sé hæsta tala í heimi. Það er alveg sama hvaða tölu maður nefnir, það væri alltaf hægt að bæta annarri tölu við hana og fá út enn hærri tölu en maður byrjaði með.
Um svipað efni er hægt að lesa í eftirfarandi svörum á Vísindavefnum:
Hver er hæ...
Orðasambandið sitja á hakanum merkir að ‛verða út undan, mæta afgangi’. Það þekkist frá 18. öld. Annað svipað frá sama tíma kemur fyrir í íslensk-latnesk-danskri orðabók Björns Halldórssonar sem gefin var út 1814. Það er að verða á hakanum sem Björn segir notað um það að fá ysta eða versta sætið. Fleiri afbr...
Í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er elsta dæmi um bomsur úr blaðinu Speglinum frá 1932:Gúmmístígvjel á börn og fullorðna, með bæjarins lægsta verði. Bomsur og skóhlífar í miklu úrvali. Stefán Gunnarsson Skóverslun Austurstræti 12.Heldur eldri dæmi er að finna á timarit.is eða úr Vísi frá 1928. Öll elstu dæmin er...
Geisladiskar eru lesnir neðan frá í geislaspilurum.
Þannig er rangt að tala um að setja geisladisk undir geislann, rétt eins og talað er um að láta hljómplötu undir nálina. Réttara er að segjast setja diskinn yfir geislann.
Annar munur á geisladiskum og hljómplötum er sá að geisladiskar eru lesnir frá miðju ...
Vogurinn heitir Elliðaárvogur að réttu lagi. Í Landnámabók er nefndur Elliðaárós fyrir neðan heiði (það er Mosfellsheiði) (Íslenzk fornrit I, bls. 384). Í sóknarlýsingu frá 1855 eftir sr. Stefán Þorvaldsson er ýmist nefndur Elliðaárvogur eða Elliðaárvogar (Gullbringu- og Kjósarsýsla. Sýslu- og sóknalýsingar. Rvk....
Spurningin í heild var svona:
Ef ég stend á tunglinu, í hvaða átt rís sólin?
(Í austri, held ég eftir að hafa hugsað málið)Það er rétt að sólin rís í austri á tunglinu. Hins vegar gerist það miklu hægar en á jörðinni, þar sem einn sólarhringur á tunglinu er heill mánuður, eða 29,53 jarðardagar. Ástæðan er sú að ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!